Brydebúð er staðsett í gamla hluta Víkurþorps, vestast í þorpinu undir bökkunum svokölluðu, ekki langt frá hrapinu og fjörunni.
Verslunarhúsið var upphaflega byggt í Vestmannaeyjum árið 1831 sem gamla Godthaabsverslun. Árið 1895 keypti J.P.T. Bryde, stórkaupmaður og grósseri, gamla verslunarhúsið, lét taka það niður og flytja sjóleiðina til Víkur.
Verslunarrekstur
var óslitið í gömlu Brydebúð til ársins
1980: Brydeverslun 1895 - 1914, Þorsteinn Þorsteinsson & Co
1914 - 1926, Kaupfélag Skaftfellinga 1926 - 1980. Nánar er hægt
að lesa um sögu Brydebúðar hérna.
Brydebúð
Víkurbraut 28
870 Vík í Mýrdal
S: 487-1395
Email: info@vik.is
Á sumrin er rekin upplýsingamiðstöð fyrir ferðamenn.
- öll alhliða
þjónusta við ferðamenn
- seld eru póstkort, landakort, bækur og minjagripir
- leiðsögn og sala aðgöngumiða á sýningar
Opið alla daga í
sumar
kl. 10:00 - 13:30 og 14:30 - 17:00
